Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Friðarganga á Þorláksmessu - blysför
Íslenskir friðarsinnar standa að venju fyrir blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu. Safnast verður saman á Hlemmi og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og sjöunda í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfssonar kórstjóra tekur að vanda þátt í blysförinni sem endar með stuttum fundi á Lækjartorgi. Þar mun Falasteen Abu Libdeh frá Palestínu halda stutt ávarp. Fundarstóri verður Arnar Jónsson leikari. Fundinum lýkur síðan með friðarsöng. Friðargöngur verða einnig á Akureyri og Ísafirði á Þorláksmessukvöld. Með friðarkveðju Sveinbjörn Markús
Sveinbjörn Markús Njálsson, þri. 19. des. 2006
Aðalfundur VG í Hafnarfirði 11. desember 2006 kl. 20:00
Ágætu félgar og aðrir þeir sem áhuga hafa á að ganga til liðs við Vinstrihreyfinguna - Grænt framboð eru hvattir til að mæta á aðalfund feálgsins í Gamla Bókasafninu, Mjósundi mánudagskvöldið 11. desember 2006 kl. 20:00. Með félagskveðjum Sveinbjörn Markús
Sveinbjörn Markús Njálsson, lau. 9. des. 2006
Hjólreiðabrautir
Ágæti Heimir. Þakka þér þessa fyrirspurn. Ég mun beita mér fyrir lagningu hjólabrauta sem og reiðvega hvort heldur er á höfuðborgarsvæðinu eða um landið allt. Hjólreiðabrautir og reiðvegir eiga að vera hluti af vegaáætlun landsins alls. Í mínum huga eru hjólreiðabrautir og reiðvegir bæði umhverfismál og lýðheilsumál. Megin inntak í vegaáætlun er og á að vera öryggi í umferðinnu fyrir akandi-, hjólandi-, gangandi- og hestamenn. Með góðum kveðjum Sveinbjörn Markús
Sveinbjörn Markús Njálsson, fim. 30. nóv. 2006
Hjólaspurning
Þessu er beint til þín, Sveinbjörn, sem þátttakanda í forvali Vg 2.des næstkomandi: Kæri frambjóðandi. Munt þú koma til með að beita þér fyrir því að hjólreiðabrautir komist í vegalög, svo hjólreiðar verði raunhæfur samgöngukostur í þéttbýli? Kær kveðja Heimir Viðarsson heimirv@simnet.is
Heimir Viðarsson (Óskráður), mán. 27. nóv. 2006
Um bloggið
Sveinbjörn Markús Njálsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar