25.11.2006 | 19:36
Fræðslu - og umhverfismál
Ég er Sveinbjörn Markús, búsettur í Hafnarfirði frá 1999, kvæntur Guðbjörgu Vésteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra og eigum við þrjú börn og tvö barnabörn.
Ég er menntaður grunnskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands 1980. Hóf að loknu námi kennslu í Borgarnesi 1980. Fluttum heim að Hólum í Hjaltadal, Skagafirði 1982 og bjuggum þar til 1989. þar starfaði ég sem grunnskólakennari jafnframt því að hafa umsjón með skóræktarstarfi á staðnum. Starfaði sem aðstoðar-skólastjóri á Dalvík 1989 - 1997 og á Akureyri 1997 -1999. Starfa sem skólastjóri við Álftanesskóla á Álftanesi.
Ég hef tekið virkan þátt í félags- og stéttarfélagsmálum, var m.a. í stjórn Verkalýðsfélagsins Harðar sunnan Skarðsheiðar og síðar í stjórnum svæðafélaga og fulltrúaráði Kennarasambands Íslands, verið formaður Ungmennasambands Skagafjarðar í fimm ár og formaður Alþýðubandalags Borgarness og nærsveita tvö ár.
Samhliða starfi hef ég skrifað fræðslurit um tré og runna í íslenskum skógum og kennsluefni um sama efni. Ég er félagi í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar. Skólamál hafa bæði verið starf mitt og áhugamál.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.12.2006 kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sveinbjörn Markús Njálsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar